Refund policy
This is noted in the terms of the website, please have a look there.
See here: https://allin3d.is/pages/skilmalar-vefverslunar
6. Réttur til að falla frá kaupum / skilafrestur
Réttur til að falla frá kaupum (angurréttur)
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 á kaupandi (neytandi) rétt á að falla frá kaupum innan 14 daga frá því að vara er afhent, án þess að tilgreina ástæðu.
Til að nýta réttinn verður kaupandi að tilkynna seljanda um ákvörðun sína með skriflegum hætti (t.d. með tölvupósti) áður en fresturinn rennur út.
Neytanda er heimilt að opna umbúðir og skoða vöruna til að staðfesta eiginleika hennar. Sé varan notuð umfram það sem nauðsynlegt er, og það veldur verðmætisrýrnun á vörunni, áskilur seljandi sér rétt til að draga þá rýrnun frá endurgreiðslunni.
Undantekningar frá skilarétti:
Angurréttur gildir ekki um vörur sem eru sérsmíðaðar eða prentaðar samkvæmt séróskum og forskrift kaupanda.
Skilaréttur fellur niður ef innsigli hefur verið rofið á vörum þar sem innsiglið er nauðsynlegt af heilbrigðis-, hreinlætis- eða gæðaástæðum (t.d. lofttæmdar pakkningar á filamenti).
Kaupandi ber beinan kostnað af því að endursenda vöruna, nema hún hafi verið gölluð eða röng afhending hafi átt sér stað.
7. Gallaðar eða rangar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng skal kaupandi hafa samband innan hæfilegs tíma á allin3d@allin3d.is
Við munum:
- Skipta vörunni út
- Endurgreiða kaupverð
- Eða bjóða aðra sambærilega lausn samkvæmt samkomulagi