Að 3D prenta er mjög skemmtilegt áhugamál því að möguleikarnir eru endalausir og í raun það eina sem takmarkar hvað maður getur gert er hugmyndaflugið.

En svo að fólk nái tökum á þessu í upphafi og gefist ekki upp, borgar sig að afla sér þekkingar.

Við mælum sérstaklega með 3D námskeiðum sem Jói í 3Dverk heldur í Iðunni. Einnig er allskonar aðstoð og hjálp hægt að fá á Facebook síðunni 3D prentun á íslandi.

Einnig er hægt að benda á YouTube myndbönd sem Marteinn S. Sigurðsson hefur gefið út.

Einnig gaf Einar Mikael út bók fyrir byrjendur sem heitir „3D prentun fyrir byrjendur“ og er farinn að halda byrjendanámskeið

Hvað prentara varðar mæli ég eindregið með Bambulab fyrir byrjendur, hann er auðveldur í notkun og flest allar stillingar sér hann um sjálfur.

Eitt ber samt að hafa í huga að á internetinu er nóg til af mannskap sem telur sig vita allt um þessi mál en farið varlega að trúa öllu svona í upphafi. Algengt ráð er að benda á að það sé raki í filamentinu (prentþráðnum) en held að það sé sjaldnast raunin þegar bent er á það. Ég sjálfur þurrka samt sum filaments áður en ég nota þau, svona bara til öryggis. t.d. TPU og dýr efni. það er þá örugglega ekki raki sem eyðileggur prentið.

Mæli með að fólk byrji á að nota PLA, PLA Silk eða PETG, meðan það öðlast smá reynslu og þor. Alls ekki nota ABS ASA eða sambærileg efni nema í vel loftræstu rými með lokuðum prentara.

Siður sem við mælum með er t.d. makerworld.com sem haldið er út af Bambulab, thingiverse.com ,  og cults3d.com þar sem hægt er að kaupa mjög flottar teikningar. yeggi.com er svo nokkursskonar google fyrir 3d teikningar, sem finnur efni jafnt á ókeypis síðum og þeim sem selja teikningar.

Gott er að þrífa prentplötuna reglulega með volgu vatni og uppþvottalegi og forðast ætíð að snerta hana með fingrum því að húðfita veldur því að plastið festist ekki við plötuna.

Gott er að eiga Isopropyl Alcohol til að þrífa plötuna. Mæli með að fólk sé ekki feimið við að nota lím á prentplötuna eins og t.d. 3d Printing Adhesive frá Landu þegar verið er að gera annaðhvort stóra hluti sem verpast auðveldlega á plötunni eða aðra hluti með lítinn snerti flöt á plötunni.

Það er nauðsynlegt að þrífa prentplötuna þegar farið er milli efna í prentun, t.d. farið milli PLA og PETG, ástæðan er sú að þessi plast efni bindast ekki saman og virka fráhrindandi á hvort annað og kemur í veg fyrir festingu á plötunni ef að einhverjar leifar eru eftir. Þessi eiginleiki gerir það t.d. að verkum að hægt er að nota efnin sem support fyrir hvort annað og það festist ekki þótt stilling á Z sé núll.

Alls ekki láta prent sem klikka draga úr ykkur kjark, það gerist hjá öllum og er hluti af lærdómsferlinu.