Skilmálar vefverslunar

1. Almennt

Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum í gegnum vefverslun Allin3D, kt. 460226-1120, heimilisfang Hnoðravellir 8b, netfang allin3d@allin3d.is, sími 7730330.

Með því að versla í vefversluninni samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála.

2. Vörur og verð

Vefverslunin selur filament, fylgihluti og aðrar vörur tengdar 3D prentun.

  • Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) nema annað sé tekið fram.
  • Virðisaukaskattur er innifalinn í verði nema annað sé sérstaklega tekið fram.
  • Áskilinn er réttur til verðbreytinga án fyrirvara.
  • Myndir af vörum eru til leiðbeiningar og geta í einstaka tilvikum vikið frá raunverulegu útliti.

3. Pantanir

Pöntun telst bindandi þegar greiðsla hefur verið staðfest og staðfestingarpóstur hefur verið sendur til kaupanda.

Seljandi áskilur sér rétt til að hafna eða afturkalla pantanir, t.d. ef:

  • Vara er uppseld eða ekki tiltæk
  • Komi upp augljósar verðvillur (t.d. vegna kerfisbilana eða innsláttarvilla) þar sem verð er bersýnilega rangt, áskilur seljandi sér rétt til að fella pöntunina niður, jafnvel þótt sjálfvirk staðfesting hafi borist, enda hafi kaupandi mátt vera ljóst að um villu væri að ræða.
  • Grunur leikur á misnotkun eða svikum

4. Greiðslur

Greiðslur fara fram í gegnum öruggar greiðslugáttir sem vefverslunin samþykkir.

Við tökum almennt við:

  • Greiðslukortum
  • Millifærslum

5. Afhending og sendingar

  • Pantanir eru sendar innan gefinst tímaramma frá staðfestri greiðslu nema annað sé tekið fram eða eitthvað kemur upp á.
  • Sendingarkostnaður birtist áður en kaup eru staðfest.
  • Afhendingartími getur verið breytilegur eftir staðsetningu og flutningsaðila.
  • Seljandi leitast við að afhenda vörur innan tilgreinds frests en ber ekki ábyrgð á ófyrirsjáanlegum töfum flutningsaðila sem teljast vera vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).

6. Réttur til að falla frá kaupum / skilafrestur

Réttur til að falla frá kaupum (angurréttur)
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 á kaupandi (neytandi) rétt á að falla frá kaupum innan 14 daga frá því að vara er afhent, án þess að tilgreina ástæðu.
Til að nýta réttinn verður kaupandi að tilkynna seljanda um ákvörðun sína með skriflegum hætti (t.d. með tölvupósti) áður en fresturinn rennur út.
Neytanda er heimilt að opna umbúðir og skoða vöruna til að staðfesta eiginleika hennar. Sé varan notuð umfram það sem nauðsynlegt er, og það veldur verðmætisrýrnun á vörunni, áskilur seljandi sér rétt til að draga þá rýrnun frá endurgreiðslunni.
Undantekningar frá skilarétti:

Angurréttur gildir ekki um vörur sem eru sérsmíðaðar eða prentaðar samkvæmt séróskum og forskrift kaupanda.

Skilaréttur fellur niður ef innsigli hefur verið rofið á vörum þar sem innsiglið er nauðsynlegt af heilbrigðis-, hreinlætis- eða gæðaástæðum (t.d. lofttæmdar pakkningar á filamenti).
Kaupandi ber beinan kostnað af því að endursenda vöruna, nema hún hafi verið gölluð eða röng afhending hafi átt sér stað.

7. Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara reynist gölluð eða röng skal kaupandi hafa samband innan hæfilegs tíma á allin3d@allin3d.is

Við munum:

  • Skipta vörunni út
  • Endurgreiða kaupverð
  • Eða bjóða aðra sambærilega lausn samkvæmt samkomulagi

8. Ábyrgð og notkun vara

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að:

  • Nota filament og 3D prentvörur samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
  • Tryggja að vörur henti þeim búnaði sem þær eru notaðar með

Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af rangri notkun eða ósamrýmanleika við búnað kaupanda.

9. Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem lög leyfa og að teknu tilliti til ófrávíkjanlegra réttinda neytenda, ber seljandi ekki ábyrgð á

  • Óbeinu tjóni eða afleiddu tjóni
  • Tjóni vegna notkunarstöðvunar
  • Tjóni vegna rangrar uppsetningar eða notkunar á vörum

10. Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu vefverslunarinnar og gildandi lögum. Kvartanir má einnig beina til Persónuvernd

11. Lög og varnarþing

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir íslenskum dómstólum.

12. Breytingar á skilmálum

Seljandi áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara. Nýjasta útgáfa er ávallt birt á vefsíðunni.