Leiðarvísir um þrívíddarprentþræði: PLA, PETG, ABS, ASA, TPU og PEBA
Almennir og auðveldir þræðir
1. PLA (Polylactic Acid)
-
Prenterfiðleikar: Mög auðvelt (Lágur prenthiti, lágmarkshætta á að efnið verpist, krefst ekki lokaðs prentara)
-
Hitaþol: Lágt (~50°C–55°C)
-
Helstu eiginleikar: Stíft efni, getur verið stökkt við högg, gefur mjög góða og fína áferð.
-
Hentar best í: Útlitshönnun, skrautmuni, skrifborðsmuni og hluti sem verða ekki fyrir miklu álagi eða hita.
2. PETG (Polyethylene Terephthalate Glycol)
-
Prenterfiðleikar: Auðvelt (Aðeins hærri hiti en í PLA, lítil hætta á að efnið verpist)
-
Hitastefna / Hitaþol: Meðalhátt (~70°C–80°C)
-
Helstu eiginleikar: Sveigjanlegt, mjög góð viðloðun milli laga, þolir efni vel, góð blanda af sveigjanleika og styrk.
-
Hentar best í: Nytsamlega hluti, vélrænar hlífar, festingar og hluti sem verða fyrir litlu veðurálagi
Tæknilegir þræðir og efni í utandyranotkun
3. ABS (Acrylonitrile Butadiene Styrene)
-
Prenterfiðleikar: Meðalerfitt / Erfitt (Krefst lokaðs prentara til að koma í veg fyrir að efnið verpist eða sprungur myndist, gefur frá sér gufur í prentun)
-
Hitastefna / Hitaþol: Hátt (~90°C–100°C)
-
Helstu eiginleikar: Hátt höggþol, létt efni, auðvelt að slípa og slétta með asetoni.
-
Hentar best í: Vélræna hluti sem þurfa að þola hita, innréttingar í bíla og tækjahlífar.
4. ASA (Acrylonitrile Styrene Acrylate)
-
Prenterfiðleikar: Meðalerfitt / Erfitt (Krefst lokaðs prentara svipað og ABS, gefur frá sér gufur)
-
Hitastefna / Hitaþol: Hátt (~95°C–100°C)
-
Helstu eiginleikar: Líkist ABS í styrk, en hefur framúrskarandi UV- og veðurþol (upplitast ekki né brotnar niður í sólarljósi).
-
Hentar best í: Alla útihluti, hluti fyrir bíla eða báta og hlífar sem verða fyrir sól og veðurálagi
Sveigjanlegir þræðir (Elastomerar)
5. TPU (Thermoplastic Polyurethane)
-
Prenterfiðleikar: Meðalerfitt (Krefst Direct Drive drifs eða mjög hægrar prentunar, dregur auðveldlega í sig raka)
-
Mýkt og sveigjanleiki: Hár (Yfirleitt 85A til 95A Shore-hörku)
-
Helstu eiginleikar: Frábært slitþol, há hljóð- og höggdeyfing, sterk binding milli laga.
-
Hentar best í: t.d. Símahulstur, dempara, drónahlífar , pakkningar og handföng.
6. PEBA (Polyether Block Amide)
-
Prenterfiðleikar: Sérhæft / Erfitt (Krefst mikillar rakastýringar og nákvæmra prentstillinga)
-
Mýkt og sveigjanleiki: Mög hár (Mög létt efni með frábæra endurvarpsorku / skoppar vel)
-
Helstu eiginleikar: Lægri eðlisþyngd en TPU, heldur sveigjanleika vel í frosti og missir litla orku við endurtekna beygju.
-
Hentar best í: Hágæða íþróttabúnað (milliplötur í skóm, dempunarfestingar), bolta, sveigjanlega hluti sem þurfa að þola kulda og dempara sem þurfa endurvarpa orku.
Samanburðartafla
| Þráður | Hitaþol (Hámark) | Prenterfiðleikar | Helsti kostur | Helsti galli / Takmörkun |
| PLA | Lágt (~55°C) | Auðvelt | Auðveldast í prentun, mjög fín áferð | Lágur bræðslumark, stökkt |
| PETG | Meðalhátt (~75°C) | Auðvelt/Meðal | Sveigjanlegt, efnaþolið | Hætta á þráðamyndun (stringing) |
| ABS | Hátt (~95°C) | Erfitt | Mikið högg- og hitaþol | Verpist auðveldlega án lokunar |
| ASA | Hátt (~100°C) | Erfitt | UV- og veðurþolið, hitaþolið | Gufur við prentun, Verpist |
| TPU | Meðalhátt (~80°C) | Meðal | Mikið slitþol, sveigjanlegt | Krefst hægrar prentunar |
| PEBA | Meðalhátt (~80°C) | Sérhæft | Mjög létt, mikill sveigjanleiki og orkuendurvarp | Dregur í sig raka, flókið í uppsetningu |