Velkomin til Allin3D!

Áhugi okkar á þrívíddarprentun byrjaði þegar félagi okkar heyrði að mér vantaði hlut í plastglugga , en sendingarkostnaður var hár og tók langan tíma að fá sent. Hann sagðist redda þessu og kom með daginn eftir útprentað. Þarna varð okkur ljóst að möguleikarnir voru miklir með þessa nýju tækni. Við skelltum okkur á námskeið í Iðunni og þá var ekki aftur snúið.

Við fórum að huga að því að opna þessa vefsíðu eftir að hafa farið á sýningu í Þýskalandi og séð mikið af flottu efni, í kjölfar þess var ákveðið að henda inn smá pöntun af því sem vakti mesta athygli. En þá kom í ljós að það eru lágmarkspantanir.

Létum samt verða af þessu og ákváðum að athuga hvort það væru ekki fleiri sem myndu vilja meira úrval af efni.

Þá hafði annað fyrirtæki samband við okkur, sem framleiðir bæði Spectrum og The Filament. Þeir höfðu engar lámarkspantanir í huga og voru pantaðar margar sortir til að auka úrvalið.

Á umræddri sýningu voru tekin mörg sýni með heim og valið það besta sem okkur fannst sjálfum, því að  við viljum útvega ykkur gott og fjölbreytt efni ásamt góðri þjónustu,

Þessi verslun er að opna og má því búast við að einhverjir hnökrar verða í upphafi. Ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er og við leysum eins fljótt og við getum úr því.