Skilaréttur
Heimilt er að skila/skipta vörum í óopnuðum umbúðum allt að tveimur vikum eftir kaup, hægt að skipta, fá aðra eins vöru eða fá að fullu endurgreitt. Áskiljum okkur rétt að fá staðfestingu á kaupum þ.e. sjá kvittun sem viðkomandi fékk í tölvupósti. Best er að vera í sambandi við okkur með vefpósti svo hægt sé að finna tíma.
Afhending vöru
Viðskiptavinur getur valið að sækja vörur í Hafnarfjörð sér að kostnaðarlausu milli 16 og 18 á virkum dögum eftir samkomulagi. Viðskiptavinur fær senda tilkynningu þegar pöntunin er klár. Undir venjulegum kringumstæðum er það samdægurs eða daginn eftir.
Einnig er hægt að fá vörurnar sendar með póstinum, annaðhvort í póstbox eða heimsent. Rukkað er fyrir það eftir gjaldskrá póstsins. Þessi kostnaður sést áður en greitt er fyrir pöntunina. Venjulega eru sendingar póstlagðar næsta virka dag eftir að pöntun berst.
Af þeim pöntunum sem dreift er af Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins.