PLA er auðvelt í prentun og því notað í dót, skraut ofl

PETG er sterkara efni en PLA og því notað frekar í hluti sem þurfa að þola smá álag, t.d. hillur, snaga ofl

ABS er talsvert sterkara og þolir einnig hita vel, mikið notað í t.d. vélræna hluti leikföng sem hreyfast ofl

ASA er mjög þolið gagnvart veðri og UV geislum, oft notað í garðverkfæri, dróna , kassa utan um rafbúnað ofl. gulnar ekki með aldri.

TPU er teigjanlega plastið, er mjög sterk og þolir allskonar álag, oft notað í leikföng, pakkningar, höggdempara og jafnvel skó.