Uppsetning í Bambu prenturum
Fékk fyrirspurn hvernig ætti að nota þessi filament í Bambuprentara. Það er bara eins og með öll önnur efni en frá þeim sjálfum.
Velur Edit á viðkomandi hólfi á AMS, undir filament ýtir þú á örina niður og velur Generic, í hólfinu hægra megin við gengeric ýtir þú á örina og velur hvers lags efni er um að ræða PLA, PETG, TPU, o.sv.frv, svo undir color velur þú bara þann lit sem er líkastur því sem þú ert að setja inn. Þetta dugar í lang flestum tilfellum alveg án fínstillinga.